Framtíðarsýn
Vibe Ísland er aðeins byrjunin. Markmiðið er að byggja upp árlegan viðburð sem verður stærsti vettvangur ungs fólks á Íslandi fyrir gervigreind, nýsköpun og frumkvöðlastarf. Á næstu árum stefnum við að því að fjölga þátttakendum, fá fleiri fyrirtæki og mentora að borðinu og skapa tengingar við alþjóðlegt nýsköpunarsamfélag. Til lengri tíma litið viljum við að Vibe Ísland verði staðurinn þar sem næsta kynslóð íslenskra frumkvöðla, stofnenda og tæknileiðtoga hittist, lærir og byggir hugmyndir sem geta haft áhrif langt út fyrir landsteinana.